Ánaland 6

Verknúmer : BN039555

528. fundur 2009
Ánaland 6, (fsp) svalalokun íbúðar
Spurt er hvort leyfi yrði til að koma fyrir svalalokun með rennihurð úr perlugleri á svalir 0205 í eigu íbúðar 0202 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 6 við Ánaland.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og að teknu tilliti til ákvæða gr. 102 í byggingarreglugerð nr. 441/1998,
enda verði sótt um byggingarleyfi.