Tímalengd afgreiðslufunda

Verknúmer : BN039461

524. fundur 2009
Tímalengd afgreiðslufunda,
Um langt skeið hefur byggingarnefnd tekið um 30 mín. matarhlé á fundum sínum. Sama hefur verið gert á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa frá upphafi. Vegna breyttrar aðstöðu og aðstæðna er ákveðið að fella niður matarhlé frá og með næsta fundi. Þessi bókun er gerð til skýringar á breyttri tímalengd funda í framtíðinni.