Laugavegur 83

Verknúmer : BN039444

529. fundur 2009
Laugavegur 83, (fsp) ofanábygging
Sótt er um leyfi til að byggja 5. hæðina ofan á íbúðar- og atvinnuhúsið á lóð nr. 83 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá
6. mars 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. mars 2009.
Nei.
Samanber umsögn skipulagsstjóra er erindið ekki í samræmi við deiliskipulag.


247. fundur 2009
Laugavegur 83, (fsp) ofanábygging
Á afgreiðslufundi skipulagsstjóra 13. febrúar 2009 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 5. hæðina ofan á íbúðar- og atvinnuhúsið á lóð nr. 83 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umfjöllunar hjá verkefnisstjóra miðborgar og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. mars 2009
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Samræmist ekki deiliskipulagi.

246. fundur 2009
Laugavegur 83, (fsp) ofanábygging
Á afgreiðslufundi skipulagsstjóra 13. febrúar 2009 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 5. hæðina ofan á íbúðar- og atvinnuhúsið á lóð nr. 83 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umfjöllunar hjá verkefnisstjóra miðborgar og er nú lagt fram að nýju.
Frestað.

244. fundur 2009
Laugavegur 83, (fsp) ofanábygging
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 5. hæðina ofan á íbúðar- og atvinnuhúsið á lóð nr. 83 við Laugaveg.
Vísað til umfjöllunar hjá verkefnisstjóra miðborgar.

525. fundur 2009
Laugavegur 83, (fsp) ofanábygging
Sótt er um leyfi til að byggja 5. hæðina ofan á íbúðar- og atvinnuhúsið á lóð nr. 83 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.