Útkot - Kjalarnesi

Verknúmer : BN039350

541. fundur 2009
Útkot - Kjalarnesi, spildur D og E
Ofanritaður óskar eftir því að spildur D og E í landi Útkots verði sameinaðar undir eitt landnúmer svo hægt sé að þinglýsa nafninu Útkot 3 á spildurnar.
Málinu fylgir bréf umsækjanda dags. 20. ágúst 2008, mæliblað 31.33, samrunaskjal, bréf Landbúnaðarráðuneytis dags. 6. júlí 2004, bréf skipulags- og byggingarsviðs dags. 26. maí 2004, afrit af eignaskiptayfirlýsingu dags. 16. sept. 2002 og umsögn lögfræði- og stjórnsýslu dags. 5. júní 2009.
Synjað.
Með vísan til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu dags. 5. júní 2009.


520. fundur 2009
Útkot - Kjalarnesi, spildur D og E
Ofanritaður óskar eftir því að spildur D og E í landi Útkots verði sameinaðar undir eitt landnúmer svo hægt sé að þinglýsa nafninu Útkot 3 á spildurnar.
Málinu fylgir bréf umsækjanda dags. 20. ágúst 2008, mæliblað 31.33, samrunaskjal, bréf Landbúnaðarráðuneytis dags. 6. júlí 2004, bréf skipulags- og byggingarsviðs dags. 26. maí 2004 og afrit af eignaskiptayfirlýsingu dags. 16. sept. 2002.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.