Helgugrund 10

Verknúmer : BN039307

521. fundur 2009
Helgugrund 10, (fsp) breyta einbýlishúsi í sambýli
Spurt er hvort leyft yrði að breyta í sambýli fyrir aldraða geðfatlaða sem rekið yrði sem útibú frá sambýlinu Esjugrund 5, einbýlishúsinu á lóð nr. 10 við Helgugrund.
Erindi fylgir bréf forstöðumanns sambýlisins á Esjugrund 5, dags. 10. desember 2008, sem er að sögn kaupsamningshafi Helgugrundar 10 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 9. janúar 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem taki mið af umsögn Forvarnardeildar SHS á fyrirspurnarblaði.


239. fundur 2009
Helgugrund 10, (fsp) breyta einbýlishúsi í sambýli
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. desember 2008 þar sem sótt er um leyfi til að breyta einbýlishúsinu á lóð nr. 10 við Helgugrund í sambýli fyrir aldraða geðfatlaða sem rekið yrði sem útibú frá sambýlinu Esjugrund 5.
Erindi fylgir bréf forstöðumanns sambýlisins á Esjugrund 5, dags. 10. desember 2008, sem er að sögn kaupsamningshafi Helgugrundar 10
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.

519. fundur 2008
Helgugrund 10, (fsp) breyta einbýlishúsi í sambýli
Sótt er um leyfi til að breyta í sambýli fyrir aldraða geðfatlaða sem rekið yrði sem útibú frá sambýlinu Esjugrund 5, einbýlishúsinu á lóð nr. 10 við Helgugrund.
Erindi fylgir bréf forstöðumanns sambýlisins á Esjugrund 5, dags. 10. desember 2008, sem er að sögn kaupsamningshafi Helgugrundar 10
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.