Boðagrandi 9

Verknúmer : BN039226

515. fundur 2008
Boðagrandi 9, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að sameina lóðirnar Boðagranda 9 og lóð, sem merkt er "grenndarvöllur" á mæliblaði (hjá Fasteignamati ríkisins er hún skráð Boðagrandi 105953) í eina lóð eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 28. maí 2008. Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í skipulagsráði 16. apríl 2008, í borgarráði 25. apríl 2008 og var birt í B-deild stjórnartíðinda 19. maí 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.