Eskihlíð 24-26

Verknúmer : BN039186

514. fundur 2008
Eskihlíð 24-26, breytingar BN038520
Sótt er um leyfi til að breyta þaki áður samþykktrar sólstofu sbr. erindi BN038520 dags. 8. júlí 2008 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 24 - 26 við Eskihlíð.
Gjald kr 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.