Barónsstígur 5

Verknúmer : BN039181

514. fundur 2008
Barónsstígur 5, breyting, geymsla
Sótt er um leyfi til að færa geymslu 0103 og færð er inn á afstöðumynd gildandi umferðarkvöð á lóð fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Barónsstíg.
Erindi fylgir samþykki eigenda áritað á uppdrátt dags. 11. nóvember 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.