Flókagata 1

Verknúmer : BN038878

506. fundur 2008
Flókagata 1, (fsp) atvinnuhúsnæði
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem kæmi í stað tjalds við norðurhlið gistiheimilisins á lóð nr. 1 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008 fylgir málinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. september 2008.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 17. september 2008.


225. fundur 2008
Flókagata 1, (fsp) atvinnuhúsnæði
Á fundi skipulagsstjóra 11. september 2008 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2008 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem kæmi í stað tjalds við norðurhlið gistiheimilisins á lóð nr. 1 við Flókagötu. Erindinu var vísað til umfjöllunar hjá verkefnisstjóra Hlíða og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. september 2008..
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

224. fundur 2008
Flókagata 1, (fsp) atvinnuhúsnæði
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2008 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem kæmi í stað tjalds við norðurhlið gistiheimilisins á lóð nr. 1 við Flókagötu.
Vísað til umfjöllunar hjá verkefnisstjóra Hlíða.

504. fundur 2008
Flókagata 1, (fsp) atvinnuhúsnæði
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem kæmi í stað tjalds við norðurhlið gistiheimilisins á lóð nr. 1 við Flókagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.