Skólavörðustígur 25A

Verknúmer : BN038875

506. fundur 2008
Skólavörðustígur 25A, (fsp) veitingarekstur
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta söluskrifstofu og veitingarekstur í atvinnuhúsinu á lóð nr. 25A við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008 fylgir málinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. september 2008.
Jákvætt.
Að teknu tilliti til umsagnar skipulagsstjóra enda verði sótt um byggingarleyfi.


225. fundur 2008
Skólavörðustígur 25A, (fsp) veitingarekstur
Á fundi skipulagsstjóra 11. september 2008 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2008 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta söluskrifstofu og veitingarekstur í atvinnuhúsinu á lóð nr. 25A við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra miðborgarsvæðis og er nu lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. september 2008.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

224. fundur 2008
Skólavörðustígur 25A, (fsp) veitingarekstur
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2008 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta söluskrifstofu og veitingarekstur í atvinnuhúsinu á lóð nr. 25A við Skólavörðustíg.
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra miðborgarsvæðis.

504. fundur 2008
Skólavörðustígur 25A, (fsp) veitingarekstur
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta söluskrifstofu og veitingarekstur í atvinnuhúsinu á lóð nr. 25A við Skólavörðustíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.