Pósthússtræti 17

Verknúmer : BN038736

504. fundur 2008
Pósthússtræti 17, svalir, dyraop í stað gl
Sótt er um leyfi til að byggja svalir/pall við austurgafl og gera dyr út á hann við veitingahúsið Skólabrú 1 á lóð nr. 17 við Pósthússtræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 27. ágúst 2008 og umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 14. ágúst 2008.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júlí 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


219. fundur 2008
Pósthússtræti 17, svalir, dyraop í stað gl
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. ágúst 2008 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir/pall við austurgafl og gera dyr út á hann við veitingahúsið Skólabrú 1 á lóð nr. 17 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 7.300

Frestað. Umsagnir Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur liggja ekki fyrir.

500. fundur 2008
Pósthússtræti 17, svalir, dyraop í stað gl
Sótt er um leyfi til að byggja svalir/pall við austurgafl og gera dyr út á hann við veitingahúsið Skólabrú 1 á lóð nr. 17 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.