Skólastræti 5

Verknúmer : BN038705

499. fundur 2008
Skólastræti 5, endurmýja byggingarleyfi - gluugar-hurðir-járn
Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis BN024871 dags. 24.6.2002 vegna breytinga á suðurgafli, klæðningu, svölum og gluggasetningu. Ennfremur er sótt um leyfi fyrir breytingum á glugga- og hurðaskipan á austurhlið og endurnýjun á járnklæðningu þar á húsi á lóð nr. 5 við Skólastræti.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.