Bergstaðastræti 13

Verknúmer : BN038695

501. fundur 2008
Bergstaðastræti 13, endurn. byggingal 33061
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN033061 dags. 12. desember 2006, þar sem veitt var leyfi til að byggja þriggja hæða steinsteypta viðbyggingu auk kjallara allt einangrað að utan og klætt gráum náttúrustein og múrkerfi, með samtals þremur íbúðum og atvinnuhúsnæði á neðstu hæð (kjallara), sem tengist 1. hæð húsnæðisins sem fyrir er á lóðinni nr. 13 við Bergstaðastræti.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði til byggingafulltrúa dagsett 21.07.2008
Stærð: Viðbygging 336,6 ferm., 920,7 rúmm
Gjald kr. 7.300 + 67.233

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


499. fundur 2008
Bergstaðastræti 13, endurn. byggingal 33061
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfi, samanber erindi BN033061 samþykkt 12.12.2006 fyrir viðbyggingu úr steinsteypu við fjölbýlishús á lóð nr. 13 við Bergstaðastræti.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði til byggingafulltrúa dagsett 21.07.2008
Gjald kr. 7300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.