Dúfnahólar 2-6

Verknúmer : BN038661

501. fundur 2008
Dúfnahólar 2-6, klæðning, bílskúr
Sótt er um heimild til að klæða með áli bílskúra sem tilheyra fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Dúfnahóla.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda bílskúra við Dúfnahóla 2, 4 og 6. Samtals 29 bílskúrar.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


498. fundur 2008
Dúfnahólar 2-6, klæðning, bílskúr
Sótt er um heimild til að klæða með áli bílskúra sem tilheyra fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Dúfnahóla.
Meðfylgjandi er yfirlýsing eigenda bílskúra við Dúfnahóla 4.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.