Austurbakki 2

Verknúmer : BN038571

498. fundur 2008
Austurbakki 2, takm byggl sjá BN036263v 1.áfanga bílahús
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir botnplötu og sökklum undir 1. áfanga bílgeymsluhúss og aðkomurýmis TR á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Meðfylgjandi er greinargerð um burðarvirki og áætluð áfangaskipti. Sömuleiðis bréf Austurhafnar dags. 3.7.2008 og bréf Bílastæðasjóðs dags. 9.7.2008 og bréf Almennu verkfræðistofunar dags. 8.7.2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.


6">496. fundur 2008
Austurbakki 2, takm byggl sjá BN036263v 1.áfanga bílahús
Sótt er um leyfi fyrir botnplötu og sökklum undir 1. áfanga bílgeymsluhúss og aðkomurýmis TR á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Meðfylgjandi er grein um burðarvirki og áætluð áfangaskipti.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar umsagnir Austurhafnar og bílastæðasjóðs.