Kaplaskjólsvegur 60

Verknúmer : BN038398

213. fundur 2008
Kaplaskjólsvegur 60, viðbygging, tröppum breytt
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júní 2008 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við einbýlishús, steypa tröppur og kjallara og smíða efri hæð úr timbri, á lóð nr. 60 við Kaplaskjólsveg. Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt undirrituðu samþykki hagsmunaaðila.
Samþykkt með vísan til heimilda í viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


493. fundur 2008
Kaplaskjólsvegur 60, viðbygging, tröppum breytt
Sótt er um leyfi til að byggja við einbýlishús, steypa tröppur og kjallara og smíða efri hæð úr timbri, á lóð nr. 60 við Kaplaskjólsveg.
Málið var grenndarkynnt og samþykki hagsmunaaðila liggur fyrir.
Stærðir: Kjallari 86,6 ferm., efri hæð 91,1 ferm.,
samtals 177,7 ferm., 480,7 rúmm.
Stækkun xx ferm., xxx rúmm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


212. fundur 2008
Kaplaskjólsvegur 60, viðbygging, tröppum breytt
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júní 2008 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við einbýlishús, steypa tröppur og kjallara og smíða efri hæð úr timbri, á lóð nr. 60 við Kaplaskjólsveg. Erindinu var vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndakynningu.
Stærðir: Kjallari 86,6 ferm., efri hæð 91,1 ferm.,
samtals 177,7 ferm., 480,7 rúmm.
Stækkun xx ferm., xxx rúmm.Gjald kr. 7.300 + xxxx
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Granaskjóli 5 og Kaplaskjólsvegi 54.

491. fundur 2008
Kaplaskjólsvegur 60, viðbygging, tröppum breytt
Sótt er um leyfi til að byggja við einbýlishús, steypa tröppur og kjallara og smíða efri hæð úr timbri, á lóð nr. 60 við Kaplaskjólsveg.
Stærðir: Kjallari 86,6 ferm., efri hæð 91,1 ferm.,
samtals 177,7 ferm., 480,7 rúmm.
Stækkun xx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xxxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndakynningu. Vísað er til uppdrátta A01 - A03 dags. 26. maí 2007.