Langholtsvegur 168

Verknúmer : BN038361

497. fundur 2008
Langholtsvegur 168, setja svalir
Sótt er um leyfi til að setja svalir á tvíbýlishús á lóð nr. 168 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júlí 2008 fylgir erindinu.
Grenndarkynning stóð frá 12. júní til og með 10. júlí 2008.
Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


216. fundur 2008
Langholtsvegur 168, setja svalir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júní 2008 þar sem sótt er um leyfi til að setja svalir á tvíbýlishús á lóð nr. 168 við Langholtsveg. Gjald kr. 7.300
Grenndarkynningin stóð frá 12. júní til og með 10. júlí 2008.
Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


493. fundur 2008
Langholtsvegur 168, setja svalir
Sótt er um leyfi til að setja svalir á tvíbýlishús á lóð nr. 168 við Langholtsveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Grenndarkynningu er ólokið.


212. fundur 2008
Langholtsvegur 168, setja svalir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júní 2008 þar sem sótt er um leyfi til að setja svalir á tvíbýlishús á lóð nr. 168 við Langholtsveg.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Langholtsvegi 166, 170, 172 og 174.

491. fundur 2008
Langholtsvegur 168, setja svalir
Sótt er um leyfi til að setja svalir á tvíbýlishús á lóð nr. 168 við Langholtsveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.