Hraunbær 102B

Verknúmer : BN038312

492. fundur 2008
Hraunbær 102B, (fsp) stækka skrifstofu jarðhæð
Spurt er hvort stækka megi skrifstofu Sjálfstæðisflokksins um 50 ferm. undir bílastæði á lóð nr. 102 B við Hraunbæ.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. júní 2008 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deilskipulagi sem síðar verður grenndarkynnt.


212. fundur 2008
Hraunbær 102B, (fsp) stækka skrifstofu jarðhæð
Á fundi skipulagsstjóra 30. maí 2008 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. maí 2008 þar sem spurt er hvort stækka megi skrifstofu Sjálfstæðisflokksins um 50 ferm. undir bílastæði á lóð nr. 102 B við Hraunbæ.
Erindinu var vísað til meðferðar hjá austurteymi arkitekta og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, sem síðar verður grenndarkynnt. Samþykki allra meðlóðarhafa þarf að fylgja tillögunni.

211. fundur 2008
Hraunbær 102B, (fsp) stækka skrifstofu jarðhæð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. maí 2008 þar sem spurt er hvort stækka megi skrifstofu Sjálfstæðisflokksins um 50 ferm. undir bílastæði á lóð nr. 102 B við Hraunbæ.
Vísað til meðferðar hjá austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra.

490. fundur 2008
Hraunbær 102B, (fsp) stækka skrifstofu jarðhæð
Spurt er hvort stækka megi skrifstofu Sjálfstæðisflokksins um 50 ferm. undir bílastæði á lóð nr. 102 B við Hraunbæ.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.