Ánanaust 14

Verknúmer : BN037845

481. fundur 2008
Ánanaust 14, ógilda uppdrætti
Á fundi byggingarnefndar þann 11. september 1997 var samþykkt byggingarleyfi BN015475 fyrir söluskála Aktu Taktu á lóðinni nr. 14 við Ánanaust.
Byggingarframkvæmdir hófust með grunngreftri en voru stöðvaðar vegna mótmæla nágranna í íbúðarbyggð.
Í framhaldi var hætt við byggingaráformin.
Aðaluppdrættir vegna málsins skulu því vera ógildir.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.