Rafstöðvarvegur 23

Verknúmer : BN037826

483. fundur 2008
Rafstöðvarvegur 23, (fsp) nýtt hús
Spurt er hvort leyfi fengist til að rífa það hús sem fyrir er og byggja nýtt aftar í lóðinni sem nemur 2,5 m. hús samkv. meðfylgjandi skissum á lóð nr. 23 við Rafstöðvarveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. mars 2008 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum, enda láti umsækjandi vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi á eigin kostnað, sem grenndarkynnt verður.


202. fundur 2008
Rafstöðvarvegur 23, (fsp) nýtt hús
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2008 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að rífa það hús sem fyrir er og byggja nýtt aftar í lóðinni sem nemur 2,5 m. hús samkv. meðfylgjandi skissum á lóð nr. 23 við Rafstöðvarveg.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

2">482. fundur 2008
Rafstöðvarvegur 23, (fsp) nýtt hús
Spurt er hvort leyfi fengist til að rífa það hús sem fyrir er og byggja nýtt aftar í lóðinni sem nemur 2,5 m. hús samkv. meðfylgjandi skissum á lóð nr. 23 við Rafstöðvarveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.