Einimelur 17

Verknúmer : BN037808

488. fundur 2008
Einimelur 17, stækka anddyri, klæða húsið o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, innrétta áður gerð rými í kjallara, stækka anddyri og klæða að utan með flísum og báruðum álplötum einbýlishúsið á lóðinni nr. 17 við Einimel.
Áður gerð stækkun í kjallara: 45 ferm.
Stækkun anddyris: 6 ferm.
Samtals 51 ferm., 110,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 8.081
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


481. fundur 2008
Einimelur 17, stækka anddyri, klæða húsið o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, stækka anddyri og klæða að utan með flísum og báruðum álplötum einbýlishúsið á lóðinni nr. 17 við Einimel.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.