Barónsstígur 47

Verknúmer : BN037792

480. fundur 2008
Barónsstígur 47, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðarinnar Barónsstígur 47 eins og sýnt er á meðsendu mæliblaði útgefið 31. mars 2006 í samræmi við deiliskipulag, sem samþykkt var í Skipulags- og byggingarnefnd 9. apríl 2003 og í borgarráði 11. apríl 2003. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins var birt í B-deild Stjórnartíðinda 10. júní 2003.
Lóðin Barónsstígur 47 er skráð hjá FMR 15000 ferm., sem breytist í 7348 ferm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildir þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.