Öldugata 9

Verknúmer : BN037713

482. fundur 2008
Öldugata 9, endurnýjun á byggingarleyfi BN021313
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN021313 dags. 27.6.2000.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. febrúar 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


201. fundur 2008
Öldugata 9, endurnýjun á byggingarleyfi BN021313
Á fundi skipulagsstjóra 15. febrúar 2008 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2008 þar sem sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN021313 dags. 27.6.2000.Gjald kr. 7.300. Erindinu var vísað til meðferðar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

200. fundur 2008
Öldugata 9, endurnýjun á byggingarleyfi BN021313
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2008 þar sem sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN021313 dags. 27.6.2000.
Gjald kr. 7.300
Vísað til meðferðar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra.

479. fundur 2008
Öldugata 9, endurnýjun á byggingarleyfi BN021313
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN021313 dags. 27.6.2000.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu, vísað er til uppdráttar dags. 20. júní 2000.