Brunnstígur 5

Verknúmer : BN037708

478. fundur 2008
Brunnstígur 5, lóðamarkabreyting
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðarinnar Brunnstígur 5 eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dgs. 24.10. 2006.
Við breytinguna minnkar lóðin Brunnstígur 5 úr 440 ferm., í 391 ferm.
Deiliskipulagsbreytingingin var samþykkt í skipulagsráði 31.10. 2007, í borgarráði 08.11. 2007 og var birt í B-deild stjórnartíðinda 29.11. 2007.
Tillaga að breytingu lóðar
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.