Laugavegur 12

Verknúmer : BN037678

478. fundur 2008
Laugavegur 12, veggir í porti
Sótt er um leyfi til að setja upp tvo veggi með hurðum til að mynda 21,2 ferm. lokað port með þaki úr segldúk að þremur fjórðuhluta milli húsana á lóð nr. 1 við Bergstaðarstræti (sbr. fyrirspurn nr. BN37445) og Laugavegar 12. hurðirnar eru ekki læsanlegar og eru 1,0 meter á breidd til að tryggja flóttaleiðir úr portinu á lóðinni nr. 12 við Laugaveg.
Meðfylgandi er samþykki lóðarhafa beggja lóðanna dags. 29. desember 2007.
Gjald kr. 7.300

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.