Stórhöfði 34-40

Verknúmer : BN037575

480. fundur 2008
Stórhöfði 34-40, (fsp) bæta þakhæð ofan á húsið
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir skrifstofu og þjónustuhúsi á fimm hæðum þar sem fimmta hæðin er inndregin á lóðinni nr. 34-40 við Stórhöfða.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. febrúar 2008 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að fyrirspyrjandi láti vinna á eigin kostnað breytingu á deiliskipulagi í samræmi við þau skilyrði sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.


200. fundur 2008
Stórhöfði 34-40, (fsp) bæta þakhæð ofan á húsið
Á fundi skipulagsstjóra 1. febrúar 2008 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. janúar 2008 þar sem spurt er hvort leyfi fengist fyrir skrifstofu og þjónustuhúsi á fimm hæðum þar sem fimmta hæðin er inndregin á lóðinni nr. 34-40 við Stórhöfða. Erindinu var vísað til umfjöllunar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. febrúar 2008.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað í samræmi við þau skilyrði sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

198. fundur 2008
Stórhöfði 34-40, (fsp) bæta þakhæð ofan á húsið
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. janúar 2008 þar sem spurt er hvort leyfi fengist fyrir skrifstofu og þjónustuhúsi á fimm hæðum þar sem fimmta hæðin er inndregin á lóðinni nr. 34-40 við Stórhöfða.
Vísað til umfjöllunar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra.

476. fundur 2008
Stórhöfði 34-40, (fsp) bæta þakhæð ofan á húsið
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir skrifstofu og þjónustuhúsi á fimm hæðum þar sem fimmta hæðin er inndregin á lóðinni nr. 34-40 við Stórhöfða.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.