Ljósheimar 20-22

Verknúmer : BN037459

480. fundur 2008
Ljósheimar 20-22, (fsp) bílskúrar - svalaskýli
Spurt er hvort endurnýjun á byggingaleyfi fengist á samþykktar teikningar frá 9. júli 1964 af bílgeymslum svo og lokun svala með gleri á 1. hæð samkv. meðfylgandi skissu ásamt samþykki sumra meðeigenda á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 20-22 við Ljósheima.
Jákvætt gagnvart byggingu bílskúra enda verði sótt um byggingaleyfi og umsækjendur sýni fram á byggingarrétt sinn.
Jákvætt að loka svölum enda liggi fyrir samþykki meðeigenda og skilyrðum samkvæmt gr. 102 í byggingarreglugerð nr. 411/1998 uppfyllt.


474. fundur 2008
Ljósheimar 20-22, (fsp) bílskúrar - svalaskýli
Spurt er hvort endurnýjun á byggingaleyfi fengist á samþykktar teikningar frá 9. júli 1964 af bílgeymslum svo og lokun svala með gleri á 1. hæð samkv. meðfylgandi skissu, á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 20-22 við Ljósheima.
Frestað.
Áður en afstaða er tekin til erindisins skal fyrirspyrjandi gera grein fyrir umboði sínu og lóðarréttindum.