Starengi 6

Verknúmer : BN037363

472. fundur 2007
Starengi 6, fjölgun íbúða og sér eignarhald
Sótt er um leyfi til að breyta eignarhaldi íbúða þannig að í mhl. 02 verði allar íbúðirnar (eining 0101 , 0102 og 0103 með sér eignarhaldi í stað sameiginlegs eignarhalds.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. desember 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Synjað.
Samkvæmt þinglýstum skilyrðum á eignarhald allra íbúða að vera á einni hendi.


191. fundur 2007
Starengi 6, fjölgun íbúða og sér eignarhald
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. desember 2007 þar sem sótt er um leyfi til að breyta eignarhaldi íbúða þannig að í mhl. 02 verði allar íbúðirnar (eining 0101 , 0102 og 0103 með sér eignarhaldi í stað sameiginlegs eignarhalds.
Gjald kr. 6.800
Ekki gerð athugasemd við fjölgun íbúða. Bent skal á að samkvæmt skilmálum er heimilt að innrétta 6 litlar námsmannaíbúðir til útleigu í húsinu.

471. fundur 2007
Starengi 6, fjölgun íbúða og sér eignarhald
Sótt er um leyfi til að breyta eignarhaldi íbúða þannig að í mhl. 02 verði allar íbúðirnar (eining 0101 , 0102 og 0103 með sér eignarhaldi í stað sameiginlegs eignarhalds.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.