Miklabraut 68

Verknúmer : BN037338

473. fundur 2007
Miklabraut 68, (fsp) kaffihús
Spurt er hvort breyta megi verslun í kaffihús á 1. hæð húss nr. 68 við Miklubraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. desember 2007 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 7. desember 2007 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. umsög skipulagsstjóra.


192. fundur 2007
Miklabraut 68, (fsp) kaffihús
Á fundi skipulagsstjóra 7. desember 2007 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. desember 2007 þar sem spurt er hvort breyta megi verslun í kaffihús á 1. hæð húss nr. 68 við Miklubraut. Erindinu var vísað til umsagnar vesturteymis arkitekta skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagstjóra dags. 7. desember 2007.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

191. fundur 2007
Miklabraut 68, (fsp) kaffihús
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. desember 2007 þar sem spurt er hvort breyta megi verslun í kaffihús á 1. hæð húss nr. 68 við Miklubraut.
Vísað til umsagnar vesturteymis arkitekta skipulagsfulltrúa.

471. fundur 2007
Miklabraut 68, (fsp) kaffihús
Spurt er hvort breyta megi verslun í kaffihús á 1. hæð húss nr. 68 við Miklubraut.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.