Kistumelur 20

Verknúmer : BN037267

468. fundur 2007
Kistumelur 20, breyttur lóðarhafi
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 23. október s.l., var lögð fram og samþykkt umsókn Arnórs H. Arnórssonar, kt: 280754-4209, lóðarhafa Kistumels 20, þar sem sótt var um leyfi til þess að byggja stálgrindarskemmu að mestu á einni hæð klædda með formaðri stálkæðningu fyrir léttan iðnað á lóð nr. 20 við Kistumel.
Nú hefur komið í ljós að lóðarhafi óskaði eftir með bréfi dags. 28. september 2007 að nýstofnað einkahlutafélag Kistumelur ehf. kt: 421007-2330, verði skráður lóðarhafi ofangreindrar lóðar og var breytingin samþykkt á fundi framkvæmdaráðs þann 8. október 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.