Bugðulækur 17

Verknúmer : BN037254

194. fundur 2007
Bugðulækur 17, svalir 3.hæð
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. nóvember 2007 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á 3. hæð fjölbýlishússins nr. 17 við Bugðulæk. Grenndarkynning stóð yfir frá 29. nóv. til 31. des. 2007. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 6.800
Vísað til skipulagsráðs.

120. fundur 2008
Bugðulækur 17, svalir 3.hæð
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á 3. hæð fjölbýlishússins nr. 17 við Bugðulæk.
Erindið var grenndarkynnt frá 29. nóvember til 31. desember 2007. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


471. fundur 2007
Bugðulækur 17, svalir 3.hæð
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á 3. hæð fjölbýlishússins nr. 17 við Bugðulæk.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Sýnd lausn fer húsi illa. Grenndarkynningu ólokið.


189. fundur 2007
Bugðulækur 17, svalir 3.hæð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. nóvember 2007 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á 3. hæð fjölbýlishússins nr. 17 við Bugðulæk.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Bugðulæk 15 ásamt Rauðalæk 16 og 18.

469. fundur 2007
Bugðulækur 17, svalir 3.hæð
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á 3. hæð fjölbýlishússins nr. 17 við Bugðulæk.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar dags. 5. nóvember 2007.