Grænlandsleið 25

Verknúmer : BN037231

470. fundur 2007
Grænlandsleið 25, (fsp) breytingar
Spurt er hvort leyft yrði að byggja yfir þaksvalir á suðvesturhlið tvíbýlishússins á lóðinni nr. 25 við Grænlandsleið.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. nóvember 2007 fylgir erindinu.
Neikvætt.
Með vísan til útskriftar skipulagsstjóra frá 26. nóvember 2007.


189. fundur 2007
Grænlandsleið 25, (fsp) breytingar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. nóvember 2007 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja yfir þaksvalir á suðvesturhlið tvíbýlishússins á lóðinni nr. 25 við Grænlandsleið.
Í skilmálum deiliskipulags er gert ráð fyrir að byggja megi glerskála en framlagt erindi samræmist ekki þeim heimildum. Fyrirspyrjanda er bent á að kynna sér gildandi heimildir í skilmála deiliskipulagsins.

468. fundur 2007
Grænlandsleið 25, (fsp) breytingar
Spurt er hvort leyft yrði að byggja yfir þaksvalir á suðvesturhlið tvíbýlishússins á lóðinni nr. 25 við Grænlandsleið.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.