Sundagarðar 2

Verknúmer : BN037019

463. fundur 2007
Sundagarðar 2,
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, landupplýsingadeildar, dags. 8. október 2007, að breytingu lóðamarka og skiptingu lóðarinnar nr. 2 við Sundagarða.
Sundagarðar 2:
Lóðin er 8939 ferm., sbr. þinglesna yfirlýsingu nr. B-9124/89, dags. 26. júlí 1989.
Tekið af lóðinni vegna breytinga á götum 550 ferm.
Lóðin verður 8389 ferm.
Lóðinni verður skipt í tvær lóðir.
Lóð A (stgr. 1.335.304) Lóðin verður 3943 ferm., og verður skráð Sundagarðar 2.
Lóð B (stgr. 1.335.303) Lóðin verður 4446 ferm., og verður skráð Sundagarðar 2B.
Sjá samþykkt skipulagsnefndar 8. janúar 1996 og samþykkt borgarráðs 9. janúar 1996. Sjá einnig samþykkt skipulagsráðs 19. september 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.