Bakkastaðir 45

Verknúmer : BN037006

463. fundur 2007
Bakkastaðir 45, flutningur hús af lóðinni
Sótt er um leyfi til þess að flytja burt úr Reykjavík einlyft einbýlishús úr timbri og með áföstum bílskúr á lóðinni nr. 45 við Bakkastaði.
Kaupsamningur dags. 27. júní 2007 fylgir erindinu.
Stærð: Íbúð (fastanr. 224-3093 merki 01 0101) 131,8 ferm., 486,4 rúmm., bílskúr (fastanr. 224-3094 merki 01 0102) 29 ferm., 91,3 rúmm., samtals 160,8 ferm., 577,7 rúmm.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áður en húsið er flutt af lóðinni skal lóðarhafi sækja um byggingarleyfi fyrir nýju húsi og gera byggingarfulltrúa grein fyrir áætluðum framkvæmdahraða.