Láland 2-8

Verknúmer : BN036927

465. fundur 2007
Láland 2-8, viðbygging nr. 2
Sótt er um leyfi til að grafa frá og byggja kjallara undir hluta húss, til að stækka stofu til suðurs og anddyri til norðurs, breyta innra skipulagi og einangra að utan og múrhúða og klæða með flísum að hluta einbýlishúsið nr. 2 á lóðinni nr. 2-8 við Láland.
Málinu fylgir skilyrt samþykki meðlóðarhafa dags. 22. maí 2007 og yfirlýsing burðarvirkishönnuðar í tölvupósti dags. 18. október 2007.
Stækkun: Kjallari 53 ferm., 1. hæð 64,6 ferm.
Samtals 117,6 ferm., og 464,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 31.593
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


462. fundur 2007
Láland 2-8, viðbygging nr. 2
Sótt er um leyfi til að grafa frá og byggja kjallara undir hluta húss, til að stækka stofu til suðurs og anddyri til norðurs, breyta innra skipulagi og einangra að utan og múrhúða og klæða með flísum að hluta einbýlishúsið nr. 2 á lóðinni nr. 2-8 við Láland.
Málinu fylgir skilyrt samþykki meðlóðarhafa dags. 22. maí 2007.
Stækkun: Kjallari 53 ferm., 1. hæð 64,6 ferm.
Samtals 117,6 ferm., og 464,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 31.593
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.