Skólavörðustígur 46

Verknúmer : BN036875

460. fundur 2007
Skólavörðustígur 46, lagt fram bréf
Lagt fram bréf eiganda Njarðargötu 61, dags. 17. september 2007, vegna samþykktar byggingarfulltrúa á byggingarleyfisumsókn nr. BN036552 frá 4. september 2007.
Með vísan til 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, er samþykkt byggingarfulltrúa frá 4. september 2007 felld úr gildi sbr. 2. tölulið 25. gr. Jafnframt er umsókn nr, BN036093 vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Í ljósi þess að byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út eru allar framkvæmdir við verkið hverju nafni sem þær nefnast óheimilar sbr. ákvæði gr. 209 í byggingarreglugerð nr. 441/1998, og skulu stöðvaðar þegar í stað, hafi þær verið hafnar.