Flugvöllur 106746

Verknúmer : BN036863

463. fundur 2007
Flugvöllur 106746, stækka malarstæði
Spurt er hvort leyfi verði að stækka malarstæði við flugstöðina á Reykjavíkurflugvelli.
Erindinu fylgir tölvubréf stöðvarstjóra á Reykjavíkurflugvelli dags. 14. september 2007.
Einnig lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgeriðslufundar skipulagsstjóra frá 5. október 2007.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.


182. fundur 2007
Flugvöllur 106746, stækka malarstæði
Á fundi skipulagsstjóra 28. september 2007 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. september 2007 þar sem spurt er hvort leyft verði að stækka malarstæði við flugstöðina á Reykjavíkurflugvelli. Erindinu fylgir tölvubréf stöðvarstjóra á Reykjavíkurflugvelli dags. 14. september 2007. Á fundinum var erindinu vísað til umfjöllunar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju.

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið enda er gert ráð fyrir því að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Minnt skal á að núverandi notkun og frágangur er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins.

181. fundur 2007
Flugvöllur 106746, stækka malarstæði
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. september 2007 þar sem spurt er hvort leyft verði að stækka malarstæði við flugstöðina á Reykjavíkurflugvelli. Erindinu fylgir tölvubréf stöðvarstjóra á Reykjavíkurflugvelli dags. 14. september 2007.

Vísað til umfjöllunar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra.

460. fundur 2007
Flugvöllur 106746, stækka malarstæði
Spurt er hvort leyfi verði að stækka malarstæði við flugstöðina á Reykjavíkurflugvelli.
Erindinu fylgir tölvubréf stöðvarstjóra á Reykjavíkurflugvelli dags. 14. september 2007.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.