Túngata 16

Verknúmer : BN036752

458. fundur 2007
Túngata 16, endurnýjun samþ . frá 14 maí 2002 geymsluskúr
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 14. maí 2002 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja fjóra þakglugga á suðurþekju aðalhúss og leyfi til þess að endurbyggja geymsluskúr í norðvesturhorni lóðar nr. 16 við Túngötu.
Bréf hönnuðar dags. 28. ágúst 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.