Brekkustígur 6B

Verknúmer : BN036720

461. fundur 2007
Brekkustígur 6B, (fsp) niðurrif, byggja nýtt hús
Spurt er hvort leyft yrði að rífa núverandi hús og byggja nýtt skv. meðfylgjandi skissum á lóðinni nr. 6b við Brekkustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. september 2007 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra og að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi.


180. fundur 2007
Brekkustígur 6B, (fsp) niðurrif, byggja nýtt hús
Á fundi skipulagsstjóra 7. september 2007 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. september 2007 þar sem spurt er hvort leyft yrði að rífa núverandi hús og byggja nýtt skv. meðfylgjandi skissum á lóðinni nr. 6b við Brekkustíg. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. september 2007.
Ekki eru gerðar athugasemdir við niðurrif núverandi húss með vísan til nánari skilyrða í umsögn skipulagsstjóra. Ekki er tekin afstaða til útlits húss samkvæmt fyrirspurnaruppdráttum.

179. fundur 2007
Brekkustígur 6B, (fsp) niðurrif, byggja nýtt hús
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. september 2007 þar sem spurt er hvort leyft yrði að rífa núverandi hús og byggja nýtt skv. meðfylgjandi skissum á lóðinni nr. 6b við Brekkustíg.
Vísað til umsagnar hjá vesturteymi arkitekta skipulagsstjóra.

458. fundur 2007
Brekkustígur 6B, (fsp) niðurrif, byggja nýtt hús
Spurt er hvort leyft yrði að rífa núverandi hús og byggja nýtt skv. meðfylgjandi skissum á lóðinni nr. 6b við Brekkustíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.