Vegghamrar 12-18

Verknúmer : BN036679

458. fundur 2007
Vegghamrar 12-18, (fsp) bílskúrar
Spurt er um leyfi til þess að byggja bílageymslu á norðvesturhluta lóðar nr. 12-18 við Vegghamra.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 31. ágúst 2007 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra.


178. fundur 2007
Vegghamrar 12-18, (fsp) bílskúrar
Á fundi skipulagsstjóra 24. ágúst var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. ágúst 2007 þar sem spurt er um leyfi til þess að byggja bílageymslu á norðvesturhluta lóðar nr. 12-18 við Vegghamra.
Erindinu var vísað til umsagnar í austurteymi arkitekta og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 29. ágúst 2007.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. Um aðra uppbyggingarmöguleika á lóðinni vísast til umsagnar skipulagsstjóra.


177. fundur 2007
Vegghamrar 12-18, (fsp) bílskúrar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. ágúst 2007 þar sem spurt er um leyfi til þess að byggja bílageymslu á norðvesturhluta lóðar nr. 12-18 við Vegghamra.
Vísað til umsagnar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra.

456. fundur 2007
Vegghamrar 12-18, (fsp) bílskúrar
Spurt er um leyfi til þess að byggja bílageymslu á norðvesturhluta lóðar nr. 12-18 við Vegghamra.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.