Kleifarsel 49

Verknúmer : BN036675

457. fundur 2007
Kleifarsel 49, (fsp) stækka 1.h
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við suðausturhlið 1. hæðar, að hluta undir svalir 2. hæðar einbýlishússins á lóð nr. 49 við Kleifarsel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. ágúst 2007 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra.


177. fundur 2007
Kleifarsel 49, (fsp) stækka 1.h
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. ágúst 2007 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við suðausturhlið 1. hæðar, að hluta undir svalir 2. hæðar einbýlishússins á lóð nr. 49 við Kleifarsel.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, sem síðar verður grenndarkynnt. Bent skal á að ekki er tekin afstaða til útlits á fyrirspurnarteikningum.

456. fundur 2007
Kleifarsel 49, (fsp) stækka 1.h
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við suðausturhlið 1. hæðar, að hluta undir svalir 2. hæðar einbýlishússins á lóð nr. 49 við Kleifarsel.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.