Skriðustekkur 17-23

Verknúmer : BN036588

455. fundur 2007
Skriðustekkur 17-23, (23) Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr við einbýlishúsið nr. 23 á lóðinni nr. 17-23 við Skriðustekk.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 23. júlí fylgir.
Stærð: 28,4 ferm. og 98,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.691
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.