Lambasel 2

Verknúmer : BN036487

453. fundur 2007
Lambasel 2, br. arinn, innveggir
Sótt er um leyfi til að koma fyrir arni á 2. hæðinni með tilheyrandi reykröri og breytingum á innra skipulagi á báðum hæðum einbýlishússins nr. 2 við Lambasel.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.