Kirkjustræti 2

Verknúmer : BN036345

450. fundur 2007
Kirkjustræti 2, leiðrétting á bókun
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 26. júní s.l., var lögð fram og samþykkt umsókn Hjálpræðishersins þar sem sótt var um samþykki fyrir breyttri staðsetningu tengingar slökkviliðs og inntaks vatnsúðakerfis, brunahurðum breytt úr vængjahurðum í rennihurð og fellihurð á 1. hæð, bætt við fellistiga á suðurhlið milli 2. og 3. hæðar, flóttaleiðum á 4. hæð breytt vegna lokaúttektar. Í texta var bókað vegna lóðar nr. 2 við Kirkjustétt en á að vera lóð nr. 2 við Kirkjustræti.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.