Framnesvegur 42

Verknúmer : BN036283

449. fundur 2007
Framnesvegur 42, lóðamarkabreyting
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, landupplýsingadeildar, dags. 25. júní 2007, að breytingu á lóðamörkum lóðanna nr. 42 og 42A við Framnesveg,
Framnesvegur 42: Lóðin er talin 164 ferm. Lóðin reynist 163 ferm. Tekið af lóðinni og lagt við Framnesveg 42A, 19 ferm.
Lóðin verður 144 ferm.
Framnesvegur 42A: Lóðin er talin 116,4 ferm. Lóðin reynist 117 ferm. Bætt við lóðina frá Framnesvegi 42, 19 ferm.
Lóðin verður 136 ferm.
Skipulagið var samþykkt í borgarráði þann 27. mars 2001.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.