Skipholt 17

Verknúmer : BN036255

449. fundur 2007
Skipholt 17, br. gluggum, stigum o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum aðaluppdráttum sbr. erindi BN034242 varðandi glugga á fjórðu hæð, breyta útliti á norðurhlið, færa til innréttingar á annari hæð, breyta stærðum á geymslu og þvottaherbergi ásamt minniháttar tilfærslum á baðherbergjum og stigum í íbúðum á þriðju og fjórðu hæð og stækkun á svalagangi á þriðju hæð á lóðinni nr. 17 við Skipholt.
Samþykki meðeiganda (á teikningu) fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.