Einholt 2

Verknúmer : BN036122

446. fundur 2007
Einholt 2, leiðrétt bílastæðagjöld
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 15. maí 2007 var samþykkt leyfi til þess að byggja úr steinsteypu fjórðu og fimmtu hæðina ofan á fjöleignarhúsið sem fyrir er, byggja upp stigahús með lyftu og svalaganga að bakhlið.
Breyting á innra skipulagi eldri hluta hússins þannig að á 1. hæð komi geymslur í sér- og sameign, á 2. hæð breytist flóttaleiðir og innra fyrirkomulag íbúðar 0205. Á 4. og 5. hæð eru átta íbúðir þar af sjö á tveimur hæðum og ein íbúð á einni hæð á íbúðar og atvinnulóðinni nr. 2 við Einholt. Vegna stækkunar þurfti að greiða fyrir bílastæði sem voru ranglega bókuð samtals 22 en áttu að vera samtals átta bílastæði í flokki III eða 8 x 1.426.725 = 11.413.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.