Sæbraut / Faxagata

Verknúmer : BN036121

449. fundur 2007
Sæbraut / Faxagata, byggingaskilti
Sótt er um leyfi til að setja upp tímabundið upplýsingaskilti varðandi byggingarframkæmdir TRH Austurhöfn 2 á milli Sæbrautar og Faxagötu.
Tölvubréf gatna- og eignaumsýslu dags. 12. júní 2007 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilti skal fjarlægja áður en tónlistarhús verður tekið í notkun, þannig skal gengið frá lýsingu og stafagerð að það valdi ekki truflun á umferð.


447. fundur 2007
Sæbraut / Faxagata, byggingaskilti
Spurt er hvort leyft yrði að setja upp upplýsingaskilti varðandi byggingarframkæmdir TRH Austurhöfn 2 á milli Sæbrautar og Faxagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skrifstofu gatna- og eignaumsýslu þar sem skilti er utan lóðar.