Baugatangi 4

Verknúmer : BN036104

447. fundur 2007
Baugatangi 4, endurnýjun fyrri umsóknar
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN023292 frá 12. mars 2002, endurnýjað 25. maí 2004 og 9. maí 2005, þar sem veitt var leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús með innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu þannig að austurhluti húss verði tveggja hæða og ekið er niður í bílgeymslu á lóð nr. 4 við Baugatanga.
Stærð: Íbúð 1. hæð 139,7 ferm., 2. hæð 84,4 ferm., bílgeymsla 47,5 ferm., samtals 271,6 ferm., 825,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 56.154
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.