Mjölnisholt 12

Verknúmer : BN035965

443. fundur 2007
Mjölnisholt 12, leiðr. v. bílastæðagj.
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 24. apríl 2007 var samþykkt leyfi til þess að byggja við núverandi atvinnuhús nr. 14 við Mjölnisholt geymslukjallar og bílakjallara að norðurhlið, breyta núverandi kjallara í 1. hæð með morgunverðasal og stækkuðum efri hæðum húss í hótel með 63 gistiherbergjum. Á nýrri 6. og 7. hæð verða sex íbúðir með aðkomu yfir "gjá" að norðurhluta húss sem verður sjö stallaðar hæðir með tuttugu og sex íbúðum ofan á kjallarahæðirnar, allt steinsteypt og einangrað að innan á sameinaðri lóð nr. 12-14 við Mjölnisholt.
Bóka átti að greiða þyrfti fyrir 20,5 bílastæði í flokki III (20,5 x 1.421.716 ) eða samtals kr. 29.145.178
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.